top of page

Bingó - bingóvélar og spjöld til leigu

Fyrir pantanir á fleiri en 200 spjöldum, hafið samband á partyprepp@partyprepp.is

Hagnýtar upplýsingar um hvernig halda skal bingó má finna neðar á síðunni.

Verðskrá bingóspjalda

100 spjöld - 10.000 kr. m. vsk.

200 spjöld - 20.000 kr. m. vsk.

300 spjöld - 27.000 kr. m. vsk.

400 spjöld - 34.000 kr. m. vsk.

500 spjöld - 40.000 kr. m. vsk.

600 spjöld - 45.000 kr. m. vsk.

700 spjöld - 49.000 kr. m. vsk.

800 spjöld - 52.000 kr. m. vsk.

900 spjöld - 54.000 kr. m. vsk.

1000 spjöld - 55.000 kr. m. vsk.

Hagnýtar upplýsingar

  • Bingó hentar fyrir afmæli, árshátíðir, þorrablót, fermingar, vinahópa, starfsmannafélög og fyrirtækja viðburði.

  • Hægt er að leigja bingóvél, spjöld og allt sem þarf til að halda gott bingó

  • Spilatími fer eftir fjölda leikja – bingókvöld tekur um 60–120 mínútur.

  • Við mælum með 3–6 leikjum fyrir góða dreifingu á spennu og verðlaunum.

  • Hægt er að aðlaga leikinn að barnaviðburðum eða sérþemum.

27124_08.jpg

Hvernig á að stýra bingói!

Að halda bingó er auðveldara en þú heldur!

Dreifið spjöldum til fólks, 1-2 spjald hentar flestum.

Byrjaðu á að útskýra hvaða leikur verður spilaður (t.d. ein lína, tvær línur eða fullt spjald).

Bingóstjórinn dregur tölur úr bingóvélinni og les þær upp skýrt og hátt.

Gott er að endurtaka hverja tölu tvisvar og gefa fólki nokkrar sekúndur til að merkja við.

Ef einhver kallar „BINGÓ!“ – stöðvaðu strax leikinn og farðu yfir tölurnar áður en verðlaunin eru afhent.

Pro tip: Haltu tempóinu lifandi, bættu við tónlist í hléum og gerðu smá show úr þessu!

Góð ráð fyrir bingóstjórann
- Endurtaktu alltaf tölurnar
- Gefðu fólki tíma – ekki flýta þér of mikið
- Hafðu verðlaunin sýnileg (það eykur spennuna!)
- Byrjaðu á einföldum leik og svo má auka flækjustigið
- Spilaðu tónlist á milli leikja
- Haltu léttu andrúmslofti – smá húmor gerir allt betra
- Forðastu að tæma bingóvélina nema í hléum

Tegundir af bingóleikjum
Við mælum með að blanda saman mismunandi leikjum yfir kvöldið:
- Ein lína
- Tvær línur
- Hornin fjögur
- Kross
- X-mynstur
- Allt spjaldið (fullkomið í lokin!)

bottom of page